Hey,hey,hey. Here I go now, here I go now..... sungu Metallica í myndinni Mission Impossible 2. Það lag mun ekki hafa verið hápunktur ferils þeirrar hljómsveitar hingað til. En talandi um hápunkta þá fór ég til Berlínar um daginn með skólanum.... það var rosalega góð ferð... Kom svo heim í smá stopp áður en ég fór til Boston... það var mjög fínt líka... gaman að sjá Jossa bróður... hann er náttúrulega þarna að ná sér í jarðfræðigráðuna... Ótrúlegur þessi jarðfræðiáhugi sem hefur alltaf fylgt honum... Allt frá því ég man eftir mér hefur það verið "jarðfræði þetta, jarðfræði hitt"... þannig að nú er hann loksins kominn í hóp fólks sem hefur áhuga á þessu líka. Frábært. Enda líður Jossa bara rosalega vel... Við vorum hjá honum í eina 6 daga... Annars er ég fínn... lífið að taka við núna á morgun með skóla og öðru slíku... en það er nú bara mánuður eftir... ég held að ég klári með miklum stæl... Stefán Borgar varð 5 mánaða núna 9. apríl hann er alltaf að verða stærri og svalari... Rosalega svalur... bara slefar soldið þessa dagana... en það er mjög svalt slef... og talandi um afmæli þá eru nú aðeins tveir mánuðir í 20 ára afmæli Ása... En hann er snoðaður nú um stundir... vonandi að hárið verði komið aðeins til baka þegar 20 árin renna í garð... En hann er samt flottur.... en allir strákarnir eru einmitt snoðaðir núna.... 8 manns búnir að snoða sig ef ég tel rétt... sem er hrikalega mikið... en gaman engu að síður... En þetta er auðvitað allt gert til heiðurs Grétars Rafns knattspyrnumanns og eins af mikilvægustu viðskiptavinum Landsbankans... en hann er búinn að vera snoðaður í góðan tíma... enda með rosalega fallegt höfuðlag... Mér finnst gott að vita að það gangi vel hjá Grétari... Veitir mér svona ró... sumarið að koma með öllum sínum dýrðarljóma... verður það ljúft maður... Fara aðeins í sólina í Portúgal og ná sér í þokkalega gott tan til að byggja á í allri sumarsólinni á Íslandi... ég hyggst vera ber að ofan í allt sumar... viðhalda taninu... ég ætla líka að vera ber að ofan niðrí bæ og svona eins og Helgi Már var í Berlín... og ef ég tala um að vera ber að ofan niðrí bæ... þá verð ég ALLTAF ber að ofan því ég á eftir að eiga heima niðrí bæ í sumar... loksins frí frá bókunum og þá verðuru sko DJAMM... RUGL... ALGJÖRT HAUSLEYSI... ÉG VERÐ ÓMENNSKUR... VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ... Annars verður maður samt að reyna að hanga þurr svona í samræmi við boltann... Ég fæ alveg illt í magann þegar ég hugsa um það... sjiiiiitt... hanga þurr í meira en viku er hrikalega erfitt maður... En það verður í lagi... NOT
megi guð og gæfan fylgja ykkur öllum... muniði bara... "When the going gets tough, the tough get going"
Kv. Gunnar Björn söngvari hljómsveitarinnar ÆSIR
11. apríl 2007 klukkan 01:13
Friðrik Dór Jónsson 5 athugasemdir
"Ellert ekki fara... plís ekki!" biðlaði Jórunn til Ellerts. En Ellert hafði gert upp hug sinn. Hann skyldi snúa heim. Aftur heim í haga þar sem hann vissi að hún myndi bíða. Gyða. Stúlkan sem hann hafði ávallt elskað og aldrei getað gleymt. "Mér þykir það leitt, en ég verð að gera þetta. Ég get ekki falið mig bakvið grímuna lengur" sagði Ellert og steig um borð í lestina. "Tjúúútjúú" heyrðist og lestin tók að hreyfast. En hann vissi ekki að Jórunn komst líka um borð. Eftir um 15 mínútna akstur heyrðist í hátalarkerfi lestarinnar "Why did you have to be a heartbreaker? Is there anything that you want me to do?" Ellert þekkti röddina undir eins. Þetta var Jórunn. Hann hugsaði með sér "Þetta getur ekki verið, helvítis fífl, ég hélt ég hefði skilið við hana á brautarpallinum" En hann hafði rangt fyrir sér. Nú opnaðist hurðin að klefa hans og inn steig Jórunn. Hún var nakin. Hún hafði þurft að afklæðast þegar hún hljóp á eftir lestinni. Fötin höfðu aftrað för hennar þegar vindurinn flökti í þeim. Svo þarna var hún allsnakin. Ellert hugsaði "Af hverju í andskotanum er hún nakin" en hann þorði ekki að spyrja. Jórunn sá að Ellert var ekki eins glaður að sjá hana og hún hafði vonast til. Hún gat ekki stöðvað það, tárin hófu að streyma niður kinnar hennar. Og um það leiti sem hún brast í grát hóf Ellert að syngja "I'm gonna loooove you more than anything, I'm gonna hold you closer than before" um stund varð Jórunn afar glöð, þerraði tárin og fleygði sér í fang Ellerts. En þegar þangað var komið sá hún að Ellert var alls ekki að syngja til hennar. Hann var í símanum við Gyðu. Þegar Ellert fann Jórunni hlamma sér allsnaktri í fang hans gerði hann hlé á samtali sínu og sagði "Viltu hætta þessum andskotans stælum þarna fíflið þitt, ég er í símanum hérna". Við það fór Jórunn út úr klefanum, fann sér eitthvað teppi og vafði sig inní það. En hún þurfti að standa það sem eftir var ferðarinnar þar sem öll sæti voru upptekin.
22. mars 2007 klukkan 16:21
Friðrik Dór Jónsson 5 athugasemdir
Í lífinu mæta manni margar hindranir en einnig verða á leið manns margir stökkpallar til betri hluta og stærri. En þó svo að eitthvað sem maður lendir í sé hvorki hindrun né stökkpallur þá er hver einasta upplifun ný reynsla og því er bankabókin í reynslubankanum alltaf að verða feitari og feitari... kv. Logi Geirs
Já þetta var aldeilis frábært hjá honum Loga... fleiri pælingar hans má finna á síðunni www.logi-geirsson.de... En líf mitt stendur í ljósum logum þessa dagana og er ávallt eitthvað ferskt og skemmtilegt að gerast... nei ég laug... þessar lygar maður... elskettasjitt... En ég fór í Hress um daginn... eftir á fór ég svo í sturtu eins og vanalega... en það sem var sérstakt við þessa sturtuferð var að þegar ég var nýbyrjaður að þurrka mér kom annar maður að þurrka sér... þessi maður hafði meðferðis handklæði og allar græjur en ákvað mér til mikillar undrunar að nota handklæðið ekki... heldur brá hann á þá snilldar lausn að stilla sér upp fyrir framan mig og skvetta vatninu svona af sér... þannig að eftir að hafa verið hálfnaður ca með að þurrka mér þá þurfti ég að gera gott hlé þar sem ég beið eftir því að þessi ágæti maður hætti að skvetta vatninu sínu á mig... Hann hætti að skvetta eftir um það bil 2 mín og hóf ég þá aftur störf við að þurrka mér... skemmtilegt... Önnur sturtu saga átti sér líka stað daginn eftir brottför Maríu Mjallar og Stefáns Borgars... en þá var ég staddur á heimili mínu nánar tiltekið inná baði og var ný stiginn uppúr sturtunni þegar ég fattaði að ég hafði gleymt að taka með mér hreint handklæði... Ég nennti ekki fram þannig að ég ákvað að nota þess í stað bara eitt af handklæðaslánni... en í þann mund sem handklæðið var við það að snerta húð mína tók ég eftir þessari líka vænu slettu af ungbarna kúk sem var þarna í handklæðinu... það munaði sem sagt aðeins örfáum sekúndubrotum að ég hefði smurt mig þarna með vænum slatta af ungbarnaskít... sem hefði verið afar skemmtileg reynsla... en ég vil þakka Maríu systur innilega fyrir að skilja þetta handklæði eftir þarna... ég held að hún hafi verið að hugsa um orðatiltakið "enginn verður óbarinn biskup" þegar hún skildi það eftir... ætlaði aldeilis að kenna litla bróður að hugsa áður en hann framkvæmdi... En úr því að ég er hér kominn á skrið með sturtusögur þá má ég til með að segja eina sem aldrei í lífi mínu mun hverfa mér úr minni... En þetta gerðist í Suðurbæjarlaug þegar ég var um það bil 7 ára gamall... ég var sem sagt á leið í sund og var í sturtu í útiklefanum þegar maður á miðjum aldri kemur uppúr lauginni og hefur störf við að sturta sig... Þessi maður hafði meðferðis þvottabursta og alls kyns sturtu græjur og hafði verið duglegur við að nota þær það sem af var sturtunni þegar hann lagði þetta allt saman til hliðar, náði sér í vænan slurk af sundlaugasturtusápu og tróð hendinni svona líka á bólakaf í rassinn á sér... en þegar hann loksins reif hendina aftur útúr rassgatinu þá hikaði hann ekki við hlutina heldur skellti sömu hendi með sömu sápu beint í hárið, lokaði augunum og naut þess að vera að þrífa á sér hárið... Þessi maður mun seint renna mér úr minni... En Sigga og Grétar úr Stjórninni eru mætt... verð að fara... kv. Agnes Yrsa Marteinsson Jónsdóttir
22. febrúar 2007 klukkan 21:18
Friðrik Dór Jónsson 8 athugasemdir
Jæja þá er ég kominn heim frá Liverpool. Lenti á mánudagskvöldið í Leifsstöð... snilld. Ferðin var virkilega góð í alla staði og mun væntanlega teljast skemmtilegasta útlandferð sem ég hef farið í... sjáum til hvort Berlín slái henni við... Ég fór út ásamt Pésa Ple, Hauksa Mökk og Davíð Heimi... Fórum í Leifsstöð á hinum forkunnfagra Citroen sendibíl sem við fjölskyldan eigum um þessar mundir... virkilega fallegur gripur... Í flugvélinni var flugdólgur sem var alveg nákvæmlega eins og Tommy Nielsen... gott mál... Lentum svo í Manchester um 9 leytið þar sem fagmaðurinn Bjassi Vidd stóð reddí í komusalnum og leiddi leiðina að hinum Citroen bílnum sem myndi flytja okkur til Liverpool... Þessi var reyndar Citroen C4... töluvert fallegri... En þegar við komum til Liverpool þá fórum við á John and Bennies eða eitthvað þannig... Þar fengum við fínan mat en hins vegar var bjórtappi í kókinu... það var fínt... eiginlega bara frábært... Síðan héldum við á Adler Way þar sem við tókum gott tjill... Á laugardeginum vöknuðum við til að fara á leik Liverpool og Everton á Anfield... ekkert spes fótboltaleikur, en góð stemning... þar voru slagarar á borð við fuck off back to Norway og DudururuANDYJOHNSON sungnir stíft... Eftir leikinn fórum við svo á ASK... þar voru íslenskar lesbíur (konur sem elska aðrar konur) á næsta borði... en maturinn var góður... þrátt fyrir að samkynhneigðir væru leyfðir þarna inni... Eftir matinn héldum við í mollið í Liverpool og þar versluðum við hommavestið góða... Um kvöldið tókum við svo gott tjill heima á Adler Way og fórum svo niður í bæ... þar var ég næstum laminn... Hauksi var handleggsbrotinn í u.þ.b. 5 mín og hurðin á einhverri búð fékk að kynnast því hversu mikið buff Pési er orðinn... biðin eftir taxa var löng en skemmtileg og við komumst heim á endanum... Sunnudagurinn var góður... fórum í Trafford Center og við sem erum enn búsettir á Íslandi sjoppuðum allir skó... mjög gott... kvöldið var svo gott tjill... póker og þannig... pizzan fór reyndar í vaskinn ef svo má segja... Mánudagurinn innihélt svo einungis eina subway ferð sem var mjög misheppnuð þar sem breski subwayinn var ekki alveg að meika það... Síðan fórum við til Manchester Airport og þar með var dvöl okkar í Englandi lokið... Mjög góð ferð... Núna ligg ég heima veikur... það er ekki alveg jafn nett... Annað sem var gaman var Nemó... nemó var mjög gott... Annállinn fékk fínar viðtökur og það var gaman... morgunpartýið var kannski engin snilld en samt fínt að prófa þannig líka... sýningin var mjög góð... Benni var góður sem Benni... Siggi var frábær í sínu hlutverki... Mjög gaman... þó vissulega sé skemmtilegra að eyða þessum degi baksviðs og á sviði... en mjög skemmtilegur dagur engu að síður... fyrirpartýið var svo mjög skemmtilegt og ballið líka... Ég var að spá í að fara heim eftir 10 mín en sleppti því... heyrði samt að einhverjir hefðu verið að fara heim einhvertíman þá... Svo var ég að spá í líka að fara í sleik en sleppti því... heyrði samt á Bylgjunni 98,9 að einhverjir hefðu verið í því... fleiri en einn meira að segja... hvað myndi kvenhetjan Bríet Bjarnhéðinsdóttir segja þegar hún sæi hvert æska landsins er farin? Ég er samt orðinn alltof upptekinn af dansinum á svona böllum... hefði viljað taka mér smá tíma í að eyðileggja sleika og annað... ég gleymdi því alveg... vesen... Annars er lífið fínt þessa dagana... líður nú samt ekki sá dagur að ég gráti ekki þá staðreynd að ég hafi týnt Love is Hell með Ryan Adams... frekar mikið svekk fyrir unga sál... Annars er Stefán Borgar að fara eftir 1 og hálfan dag... ásamt Maríu Mjöll... en það var gaman að hafa þau... Stebbi er fagmaður... algjör fagmaður...
En með vonina að vopni og gleði í hönd kveð ég héðan úr rúminu mínu... en það er einmitt 90 cm breitt... sem er ekki svo breitt... en samt mun skárra en 70 cm rúmið sem ég þurfti að hýma í allt þar til í september... Jesús hjálpi þeim manni sem þarf að þola slíkar hremmingar...
Enda þetta á nokkrum góðum myndum... allar þessar myndir eru stolnar héðan og þaðan... ég vil þakka þeim sem tóku þær...
Sara klæddist litum í fyrsta skipti í lífi sínu á Nemó... fallega gert af henni...
Þarna var Skúli sestur í Drykkjuleikinn góða... afar hress og kátur...
Þarna er ég í afar kröppum dansi við örlögin... mjög góður dans...
Ohh ég vildi ég væri með einhvern hér hjá mér... hvar ertu Rúnar? Rúnar? Hvar ertu?
Skúli 10 mín....
hópur fagmanna í Liverpool...
Að eilífu Amen...
08. febrúar 2007 klukkan 00:01
Friðrik Dór Jónsson 7 athugasemdir
Zupzup?... Lítið að gerast hjá mér... Hef verið þokkalega upptekinn á DJAMMINU... lagið DANSDANSDANS með Nylon hefur verið mér efst í huga og hef ég dansað við það allt frá áramótum og mun ekki hætta fyrr en veggirnir fara að snúast... að snúast segi ég... Annars fátt að frella... Stebbi Borgar er á landinu... mamma hans og pabbi reyndar líka... það er snilld... En annars rakst ég á þetta líka snilldar blogg hér á forsíðunni á bloggar.is... þar sem maður þarf að fara til að geta bloggað... það er engin önnur en Regína Ragnarsdóttir sem á þetta blogg... hún segir efst á síðunni sinni "Því fyllri sem ég er því fallegri ert þú" það má því glöggt sjá að hún er höfuðsnillingur þessi stúlkka og væri ég meira en til í að hitta hana... en hér er það sem Regína hafði að segja "Vá hvað marr er orðinn blautur.. ég var sko hætt að djamma en neii.. ég endaði á djamminu á laugardaginn.. og vitið hvað ? ég ætla ekkert að hætta.. það er so gaman að það er ekki hætt að stoppa núna.. Mig langar að djamma í kvöld.. hmmm.. já ok.. við vorum heima hjá ása í tjilli bara eins og vanalega, vá hef ekkert að segja um idda djamm, bara þetta var snilld.."
Já það er ekki ofsögum sagt að Regína kunni á lífið... persónulega finnst mér fyndnast hjá henni "vá hef ekkert að segja um idda djamm, bara þetta var snilld"... en það var ekki fleira Grétar minn...
kv. Frederico Alfonso My Doblican Quinn
Ég ætla að vera svona líka útúr tanaður á Nemó... Jafnvel aðeins dekkri og rifja þá upp gamla takta með Ólöfu Gregory ... þannig að þið finnið mig í Stjörnusól næstu daga...
22. janúar 2007 klukkan 21:26
Friðrik Dór Jónsson 4 athugasemdir
Þá er ég hér í New York... Það er ávallt gaman í New York... Þrátt fyrir að það hafi tekið ágætis tíma að komast hingað... kominn útá flugvöll hálf 3 og kom svo uppí íbúð til Maríu kl. 8 á íslenskum tíma... sem eru sem sagt 18 tímar... það var samt snilld... ég og Jossi pabbi tókum bara tjillið á þetta og tjilluðum meðal annars með leigubílstjóranum okkar í umferðarteppu í 2 tíma... Jossi pabbi og Senegalski cab-driverinn sofnuðu reyndar en ég sá mér ekki fært um að sofna vegna þrengsla í bílnum... Snilld allt saman... en síðan þá hefur verið mjög gott tjill í gangi hér í New York... Loksins búinn að sjá Stefán Borgar... Stelli Bolli er snillingur... fagmaður... Frelsarinn er fæddur og býr í 509w 110th st. apt. 8D... Þeir segja mér gárungar að Stefán sé alveg eins og ég og að honum líði greinilega aldrei betur en þegar hann er með Frussa frænda... En annars þá óska ég ykkur gleðilegra jóla og hafið það sem allra best... Blemmer kv. Frussi
26. desember 2006 klukkan 23:04
Friðrik Dór Jónsson 1 athugasemd
Prófum lokið... Nice one that one maður... snilld... ég smókaði ensku og sögu... semi smokaði stæ, frönsku og rek og semi skeit á mig í líffr... en þetta verður í lagi eins og aðrir hlutir... þetta reddast allt saman... En lífið hefur verið mér nokkuð ljúft eftir að þessu lauk öllu saman... Jólaball um kvöldið... Það var alveg fínt þar... frekar svona kráded þarna inni... og tónlistin skítur... en ballsleikir eru alltaf góð skemmtun... ég hef aldrei verið nær því á ævinni að vera lamin og á þessu balli... Eyðilagði sleik sem greinilega átti dýpri rætur en að vera bara ballsleikur... þetta var kveikjan að einhverju meira.... að mati gaursins sem var í sleik allavega... Svo á föstudaginn fór ég í afmæli til Davíðs Heimis... Semi óboðinn en það er í lagi... Skemmst er frá því að segja að það var algjört fagmennsku dæmi og er ég einstaklega sáttur með að hafa gerst þarna boðflenna... Restin af kvöllanum var líka snilli... Í gær var reyndar semi-súrt... en samt alveg ágætt... Annars lenti ég á föstudaginn í vandræðalegu... Ætlaði að hringja í Boða vin minn... það fór ekki betur en svo að ég hringdi í fyrrverandi... Einnig þekkt sem Hólmfríður Björnsdóttir... Það var alveg vandræðalegt sko... eftir að hafa ekki heyrt í henni frá í maí... en eftir á að hyggja var þetta símtal með óvenju hátt skemmtanagildi miðað við hið dagsdaglega símtal... Þetta líf... þetta líf... En annars er ekkert sérstakt í gangi nema að hinn 21 er það NY og ég elska NY þannig að lífið verður ljúft á milli 21 og 30 des þar sem ég verð í NY og verð með Stefáni Borgari snilla frænda mínum... sem ég hef reyndar aldrei hitt... en hann er snillingur... það er á hreinu...
Fagmennskan uppmáluð heima hjá Davíði Heimi... eins og sjá má var friður á milli mín og annara gesta þrátt fyrir að ég hafi þarna gerst boðflenna og gaf Pétur ljósmyndara það vel til kynna... og var mér létt eins og sjá má...
og talandi um fagmennsku þá erum við þarna stödd í höfuðborg fagmennskunar... NYC... gotta love it maður... gotta love it
Og enn af fagmönnum... Hér er einn slíkur... Stefán Borgar Brynjólfsson... innfæddur New Yorker og með græna kortið fyrir lífs tíð... ef það er ekki fagmennska þá veit ég ekki hvað...
Hér má svo sjá mig ásamt fyrrverandi ástkonu minni Hólmfríði Björnsdóttur greinilega á mjög miklu fagmennsku mómenti... En við áttum símtal nú í vikunni sem einkenndist þó kannski ekki beint af fagmennsku en var glettilega skemmtilegt þó... :D
Og að lokum ætla ég að setja tvær myndir sem lýsa tveimur mestu og bestu fagmennsku mómentum sem ég hef upplifað og gerðust þau bæði sumarið 2006.....
FAGMENNSKA!!!!!
en þetta er nóg í bili...
kv. Fagmaðurinn...
18. desember 2006 klukkan 04:29
Friðrik Dór Jónsson 4 athugasemdir
Ég fór á Nonnabita um daginn... nýja Nonnabita... sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að á Nonnabita var við störf kona sem er kannski svona 35 ára gömul. Þessi kona var ekki mjög aðlaðandi en þó ekkert truflandi óaðlaðandi... getum sagt að hún væri alveg meðal bresk dama... frekar ljót en þó ekkert fáránlega ljót... en það er annað mál... það sem ég hyggst tala um er að þegar ég sat þarna í makindum mínum ásamt Ásgrími Geir Logasyni þá sé ég hvar þessi kona tekur upp lyklakippu og svona dinglar henni fyrir samstarfsmann sinn sem var ungur maður um 23 ára gamall... en já hún sem sagt dinglar lyklakippunni svona aðeins þannig að það hringlar í og segir "Ég ætla AÐEINS að..." en hún klárar ekki setninguna heldur nikkar hausnum svona í átt að klósettinu... Svo leggur hún af stað og strýkur sér ákaft um magann og það sem meira var hún gekk eins og hún væri með spýtu í rassinum... En ég leiddi þó ekki hugann neitt sérstaklega að þessu og hafði í raun gleymt konunni þegar hún loksins gekk út af klósettinu aftur svona 10 mínútum seinna... Þá rann það upp fyrir mér... Hún hefur þurft að skíta aðeins þessi elska... aðeins að skítaskíta... Þess vegna vildi hún ekki klára setninguna við samstarfsmann sinn.. en það sem ég velti líka fyrir mér... ef hún þurfti ekki að klára setninguna til þess að ungi maðurinn vissi hvað hún ætlaði að gera og ef hún var inni á klósettinu í heilar 10 mínútur... er þá ekkert líklegt að hún sé að ganga í gegnum eitthvað erfitt tímabil hvað varðar hægðir... er það vaninn að konur taki sér þetta tíu mínútur - korter í það að skíta... nei... þess vegna vil ég meina að hún hafi verið með pípandi en ákveðið samt sem áður að mæta til vinnu... það þykir mér ekki fallega gert... sérstaklega í ljósi þess að hún vinnur við að búa til og handleika mat fyrir aðra... ég held allavega að ég hefði bara setið á minni eigin dollu heima fyrir og ekkert verið að nota starfsmannaklósettið í svona lagað... En þetta þarf þó ekkert að vera... kannski var hún að sinna öðrum störfum þarna inni á klósetti... en þetta er allavega mín kenning...
Hér má sjá Ingu á Nonnabita á góðri stundu heima fyrir... Þessa mynd tók Bergþór eiginmaður hennar og kann ég honum bestu þakkir fyrir að redda mér myndinni og leyfa mér að nota hana... Bergþór er maðurinn... Bellsi Böllur eins og hann er kallaður... Inga er víst svaka hrifin af gaurnum á Bellsa... segir að þetta sé klárlega HEAVY WEIGHT champion of the world... Bellsi ef þú lest þetta... You're the man...
Kv. Guttigutti
13. desember 2006 klukkan 07:10
Friðrik Dór Jónsson 3 athugasemdir
Bjór minn vor þú sem ert í flösku frelsist þinn tappi tilkomi þín froða freyði þínir humlar svo í glasi sem í munni svalaðu í dag mínum daglega þorsta og skeyttu ei um vísaskuldir svo og líka hjá þyrstunautum mínum eigi leið þú oss á Astró heldur ei á Nasa því að þitt er valdið gleðin og stuðið að eilífu Carlsberg
Já þetta er bjór faðir vorið... Ég lifi eftir þessu... Elska djamm og bjölla... ELSKA CARLSBERG... Stundum spyr fólk mig "hey býrð þú ekki í Setbergi?" þá svara ég alltaf: "Nei ég bý í CARLSBERGI..."
Vildi bara deila þessu með ykkur "fellow djömmurum" mínum...
kv. Reynsli Jóns í Djamminu...
p.s. elska djamm
10. desember 2006 klukkan 06:12
Friðrik Dór Jónsson 4 athugasemdir
Það á víst að gera risastóra styttu eftir þessari mynd og setja hana í staðinn fyrir Jesú styttuna í Rio de Janiero... Styttan kemur til með að heita "Three Legends" og verður tilbúin á haustmánuðum 2007. Heimsferðir hafa þegar hafið skipulagningu áætlanaferða til Rio þar sem ég mun sjá um fararstjórn. Ég mun þá taka fólk í létt sight seeing um borgina sem mun að sjálfsögðu enda uppi á hæðinni þar sem styttan mun standa. Þar mun ég bjóða uppá léttar veitingar fyrir þreytta göngugarpa. Á leiðinni niður mun ég svo segja ýmsar sögur af mér og Péle félaga mínum. En það vita það kannski ekki allir en Péle er guðfaðir minn og mikill vinur. Pabbi hans og afi minn voru miklir félagar og því eru tengsl fjölskyldna okkar mjög sterk. Áhugasamir geta haft samband á sala@heimsferdir.is.
Dagar þessa gaurs eru nú brátt taldir í Rio en styttan verður geymd á Þjóðminjasafni Íslands. En ríkisstjórn Íslands féllst á að láta brassana hafa myndina af mér, Bjarna og Péle "pabba" gegn því að Jesú styttan yrði geymd á Íslandi. Það var auðvitað done deal fyrir brössunum sem voru undrandi á gjafmildi íslendinga.
Annars lítið að frétta...
kveðja, "Guðsonurinn"
05. desember 2006 klukkan 08:38
Friðrik Dór Jónsson 4 athugasemdir